Multilingual Scriptures Home » Icelandic Bible » Philemon
| Icelandic Bible | ||
| Chapter # | Verse # | Verse Detail |
| 1 | 1 | Páll, bandingi Krists Jesú, og Tímóteus bróðir vor, heilsa elskuðum vini okkar og samverkamanni Fílemon, |
| 1 | 2 | svo og Appíu systur okkar og Arkippusi samherja okkar og söfnuðinum, sem kemur saman í húsi þínu. |
| 1 | 3 | Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. |
| 1 | 4 | Ég þakka Guði mínum ávallt, er ég minnist þín í bænum mínum. |
| 1 | 5 | Því að ég heyri um trúna, sem þú hefur á Drottni Jesú, og um kærleika þinn til hinna heilögu. |
| 1 | 6 | Ég bið þess, að trú þín, sem þú átt með oss, verði mikilvirk í þekkingunni á öllu því góða, sem tilheyrir Kristi. |
| 1 | 7 | Ég hlaut mikla gleði og huggun af kærleika þínum, þar eð þú, bróðir, hefur endurnært hjörtu hinna heilögu. |
| 1 | 8 | Því er það, að þótt ég gæti með fullri djörfung í Kristi boðið þér að gera það, sem skylt er, |
| 1 | 9 | þá fer ég þó heldur bónarveg vegna kærleika þíns, þar sem ég er eins og ég er, hann Páll gamli, og nú líka bandingi Krists Jesú. |
| 1 | 10 | Ég bið þig þá fyrir barnið mitt, sem ég hef getið í fjötrum mínum, hann Onesímus. |
| 1 | 11 | Hann var þér áður óþarfur, en er nú þarfur bæði þér og mér. |
| 1 | 12 | Ég sendi hann til þín aftur, og er hann þó sem hjartað í brjósti mér. |
| 1 | 13 | Feginn vildi ég hafa haldið honum hjá mér, til þess að hann í þinn stað veitti mér þjónustu í fjötrum mínum vegna fagnaðarerindisins. |
| 1 | 14 | En án þíns samþykkis vildi ég ekkert gjöra, til þess að velgjörð þín skyldi ekki koma eins og af nauðung, heldur af fúsum vilja. |
| 1 | 15 | Vísast hefur hann þess vegna orðið viðskila við þig um stundarsakir, að þú síðan skyldir fá að halda honum eilíflega, |
| 1 | 16 | ekki lengur eins og þræli, heldur þræli fremri, eins og elskuðum bróður. Mér er hann kær bróðir. Hve miklu fremur þó þér, bæði sem maður og kristinn. |
| 1 | 17 | Ef þú því telur mig félaga þinn, þá tak þú á móti honum, eins og væri það ég sjálfur. |
| 1 | 18 | En hafi hann eitthvað gjört á hluta þinn, eða sé hann í skuld við þig, þá fær þú það mér til reiknings. |
| 1 | 19 | Ég, Páll, rita með eigin hendi: Ég mun gjalda. Að ég ekki nefni við þig, að þú ert jafnvel í skuld við mig um sjálfan þig. |
| 1 | 20 | Já, bróðir, unn mér gagns af þér vegna Drottins, endurnær hjarta mitt sakir Krists. |
| 1 | 21 | Í fullu trausti til hlýðni þinnar rita ég til þín og veit, að þú munt gjöra jafnvel fram yfir það, sem ég mælist til. |
| 1 | 22 | En hafðu líka til gestaherbergi handa mér, því að ég vona, að ég vegna bæna yðar muni verða gefinn yður. |
| 1 | 23 | Epafras, sambandingi minn vegna Krists Jesú, biður að heilsa þér. Sömuleiðis |
| 1 | 24 | Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir. |