Share this page:  
 

Multilingual Scriptures

(Compare books in 2 different language versions of your choice)

Comparison Search:

Select Language version and font:
You can only select max. of two versions.
Book:
Chapter:
Verse:
---------
From: To:

Free Search:

Select Language version and font:
Enter search text:

Multilingual Scriptures Home » Icelandic Bible » Mark

Icelandic Bible
Chapter # Verse # Verse Detail
11Upphaf fagnaðarerindisins um Jesú Krist, Guðs son.
12Svo er ritað hjá Jesaja spámanni: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn.
13Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans.
14Þannig kom Jóhannes skírari fram í óbyggðinni og prédikaði iðrunarskírn til fyrirgefningar synda,
15og menn streymdu til hans frá allri Júdeubyggð og allir Jerúsalembúar og létu skírast af honum í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.
16En Jóhannes var í klæðum úr úlfaldahári, með leðurbelti um lendar sér og át engisprettur og villihunang.
17Hann prédikaði svo: ,,Sá kemur eftir mig, sem mér er máttugri, og er ég ekki verður þess að krjúpa niður og leysa skóþveng hans.
18Ég hef skírt yður með vatni, en hann mun skíra yður með heilögum anda.``
19Svo bar við á þeim dögum, að Jesús kom frá Nasaret í Galíleu og var skírður af Jóhannesi í Jórdan.
110Um leið og hann sté upp úr vatninu, sá hann himnana ljúkast upp og andann stíga niður yfir sig eins og dúfu.
111Og rödd kom af himnum: ,,Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.``
112Þá knúði andinn hann út í óbyggðina,
113og hann var í óbyggðinni fjörutíu daga, og Satan freistaði hans. Hann hafðist við meðal villidýra, og englar þjónuðu honum.
114Þegar Jóhannes hafði verið tekinn höndum, kom Jesús til Galíleu og prédikaði fagnaðarerindi Guðs
115og sagði: ,,Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Gjörið iðrun og trúið fagnaðarerindinu.``
116Jesús var á gangi með Galíleuvatni og sá Símon og Andrés, bróður Símonar, vera að kasta netum í vatnið, en þeir voru fiskimenn.
117Jesús sagði við þá: ,,Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða.``
118Og þegar í stað létu þeir eftir netin og fylgdu honum.
119Hann gekk skammt þaðan og sá Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans, og voru þeir einnig á báti að búa net.
120Jesús kallaði þá, og þeir yfirgáfu Sebedeus föður sinn hjá daglaunamönnunum í bátnum og fylgdu honum.
121Þeir komu til Kapernaum. Og hvíldardaginn gekk Jesús í samkunduna og kenndi.
122Undruðust menn mjög kenningu hans, því að hann kenndi þeim eins og sá er vald hefur, og ekki eins og fræðimennirnir.
123Þar var í samkundu þeirra maður haldinn óhreinum anda. Hann æpti:
124,,Hvað vilt þú oss, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma oss? Ég veit, hver þú ert, hinn heilagi Guðs.``
125Jesús hastaði þá á hann og mælti: ,,Þegi þú, og far út af honum.``
126Þá teygði óhreini andinn manninn, rak upp hljóð mikið og fór út af honum.
127Sló felmtri á alla, og hver spurði annan: ,,Hvað er þetta? Ný kenning með valdi! Hann skipar jafnvel óhreinum öndum og þeir hlýða honum.``
128Og orðstír hans barst þegar um alla Galíleu.
129Úr samkundunni fóru þeir rakleitt í hús Símonar og Andrésar og með þeim Jakob og Jóhannes.
130Tengdamóðir Símonar lá með sótthita, og sögðu þeir Jesú þegar frá henni.
131Hann gekk þá að, tók í hönd henni og reisti hana á fætur. Sótthitinn fór úr henni, og hún gekk þeim fyrir beina.
132Þegar kvöld var komið og sólin setst, færðu menn til hans alla þá, er sjúkir voru og haldnir illum öndum,
133og allur bærinn var saman kominn við dyrnar.
134Hann læknaði marga, er þjáðust af ýmsum sjúkdómum, og rak út marga illa anda, en illu öndunum bannaði hann að tala, því að þeir vissu hver hann var.
135Og árla, löngu fyrir dögun, fór hann á fætur og gekk út, vék burt á óbyggðan stað og baðst þar fyrir.
136Þeir Símon leituðu hann uppi,
137og þegar þeir fundu hann, sögðu þeir við hann: ,,Allir eru að leita að þér.``
138Hann sagði við þá: ,,Vér skulum fara annað, í þorpin hér í grennd, svo að ég geti einnig prédikað þar, því að til þess er ég kominn.``
139Og hann fór og prédikaði í samkundum þeirra í allri Galíleu og rak út illa anda.
140Maður nokkur líkþrár kom til hans, féll á kné og bað hann: ,,Ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.``
141Og hann kenndi í brjósti um manninn, rétti út höndina, snart hann og mælti: ,,Ég vil, verð þú hreinn!``
142Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin, og hann varð hreinn.
143Og Jesús lét hann fara, lagði ríkt á við hann
144og sagði: ,,Gæt þess að segja engum neitt, en far þú, sýn þig prestinum og fórna fyrir hreinsun þína því, sem Móse bauð, þeim til vitnisburðar.``
145En maðurinn gekk burt og ræddi margt um þetta og víðfrægði mjög, svo að Jesús gat ekki framar komið opinberlega í neina borg, heldur hafðist við úti á óbyggðum stöðum. En menn komu til hans hvaðanæva.
21Nokkrum dögum síðar kom hann aftur til Kapernaum. Þegar fréttist, að hann væri heima,
22söfnuðust þar svo margir, að hvergi var lengur rúm, ekki einu sinni fyrir dyrum úti. Og hann flutti þeim orðið.
23Þá er komið með lama mann, og báru fjórir.
24Þegar þeir gátu ekki komist með hann til Jesú fyrir fólkinu, rufu þeir þekjuna uppi yfir honum, grófu þar í gegn og létu síga ofan rekkjuna, sem hinn lami lá í.
25Þá er Jesús sér trú þeirra, segir hann við lama manninn: ,,Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.``
26Þar sátu nokkrir fræðimenn og hugsuðu í hjörtum sínum:
27,,Hví mælir þessi maður svo? Hann guðlastar. Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?``
28Samstundis skynjaði Jesús í anda sínum, að þeir hugsuðu þannig með sér, og hann sagði við þá: ,,Hví hugsið þér slíkt í hjörtum yðar?
29Hvort er auðveldara að segja við lama manninn: ,Syndir þínar eru fyrirgefnar,` eða segja: ,Statt upp, tak rekkju þína og gakk?`
210En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald til að fyrirgefa syndir á jörðu,
211þá segi ég þér`` _ og nú talar hann við lama manninn: _ ,,Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín.``
212Hann stóð upp, tók jafnskjótt rekkjuna og gekk burt í allra augsýn, svo að allir voru furðu lostnir, lofuðu Guð og sögðu: ,,Aldrei áður höfum vér þvílíkt séð.``
213Aftur fór hann út og gekk með vatninu, og allur mannfjöldinn kom til hans, og hann kenndi þeim.
214Og er hann gekk þar, sá hann Leví Alfeusson sitja hjá tollbúðinni, og hann segir við hann: ,,Fylg þú mér!`` Og hann stóð upp og fylgdi honum.
215Svo bar við, að Jesús sat að borði í húsi hans, og margir tollheimtumenn og bersyndugir sátu þar með honum og lærisveinum hans, en margir fylgdu honum.
216Fræðimenn af flokki farísea, sem sáu, að hann samneytti bersyndugum og tollheimtumönnum, sögðu þá við lærisveina hans: ,,Hann etur með tollheimtumönnum og bersyndugum.``
217Jesús heyrði þetta og svaraði þeim: ,,Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir, sem sjúkir eru. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara.``
218Lærisveinar Jóhannesar og farísear héldu nú föstu. Þá koma menn til Jesú og spyrja hann: ,,Hví fasta lærisveinar Jóhannesar og lærisveinar farísea, en þínir lærisveinar fasta ekki?``
219Jesús svaraði þeim: ,,Hvort geta brúðkaupsgestir fastað, meðan brúðguminn er hjá þeim? Alla þá stund, sem brúðguminn er hjá þeim, geta þeir ekki fastað.
220En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta, á þeim degi.
221Enginn saumar bót af óþæfðum dúk á gamalt fat, því þá rífur nýja bótin af hinu gamla og verður af verri rifa.
222Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir vínið belgina, og vínið ónýtist og belgirnir. Nýtt vín er látið á nýja belgi.``
223Svo bar við, að Jesús fór um sáðlönd á hvíldardegi, og lærisveinar hans tóku að tína kornöx á leiðinni.
224Farísearnir sögðu þá við hann: ,,Lít á, hví gjöra þeir það, sem er ekki leyfilegt á hvíldardegi?``
225Hann svaraði þeim: ,,Hafið þér aldrei lesið, hvað Davíð gjörði, er honum lá á, þegar hann hungraði og menn hans?
226Hann fór inn í Guðs hús, þegar Abíatar var æðsti prestur, og át skoðunarbrauðin, en þau má enginn eta nema prestarnir, og gaf líka mönnum sínum.``
227Og hann sagði við þá: ,,Hvíldardagurinn varð til mannsins vegna og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins.
228Því er Mannssonurinn einnig herra hvíldardagsins.``
31Öðru sinni gekk hann í samkunduhús. Þar var maður með visna hönd,
32og höfðu þeir nánar gætur á Jesú, hvort hann læknaði hann á hvíldardegi. Þeir hugðust kæra hann.
33Og Jesús segir við manninn með visnu höndina: ,,Statt upp og kom hér fram!``
34Síðan spyr hann þá: ,,Hvort er heldur leyfilegt að gjöra gott eða gjöra illt á hvíldardegi, bjarga lífi eða deyða?`` En þeir þögðu.
35Og hann leit í kring á þá með reiði, sárhryggur yfir harðúð hjartna þeirra, og sagði við manninn: ,,Réttu fram hönd þína.`` Hann rétti fram höndina, og hún varð heil.
36Þá gengu farísearnir út og tóku þegar með Heródesarsinnum saman ráð sín gegn honum, hvernig þeir gætu náð lífi hans.
37Jesús fór með lærisveinum sínum út að vatninu, og fylgdi mikill fjöldi úr Galíleu og úr Júdeu,
38frá Jerúsalem, Ídúmeu, landinu handan Jórdanar, og úr byggðum Týrusar og Sídonar kom til hans fjöldi manna, er heyrt höfðu, hve mikið hann gjörði.
39Og hann bauð lærisveinum sínum að hafa til bát fyrir sig, svo að mannfjöldinn þrengdi eigi að honum.
310En marga hafði hann læknað, og því þustu að honum allir þeir, sem einhver mein höfðu, til að snerta hann.
311Og hvenær sem óhreinir andar sáu hann, féllu þeir fram fyrir honum og æptu upp: ,,Þú ert sonur Guðs.``
312En hann lagði ríkt á við þá, að þeir gjörðu hann eigi kunnan.
313Síðan fór hann til fjalls og kallaði til sín þá er hann sjálfur vildi, og þeir komu til hans.
314Hann skipaði tólf, er skyldu vera með honum og hann gæti sent út að prédika,
315með valdi að reka út illa anda.
316Hann skipaði þá tólf: Símon, er hann gaf nafnið Pétur,
317Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans, en þeim gaf hann nafnið Boanerges, sem þýðir þrumusynir,
318og Andrés, Filippus og Bartólómeus, Matteus og Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus og Símon vandlætara
319og Júdas Ískaríot, þann er sveik hann.
320Þegar hann kemur heim, safnast þar aftur mannfjöldi, svo þeir gátu ekki einu sinni matast.
321Hans nánustu fréttu það og fóru út og vildu ná honum, enda sögðu þeir, að hann væri frá sér.
322Og fræðimennirnir, er komnir voru ofan frá Jerúsalem, sögðu: ,,Beelsebúl er í honum. Með fulltingi höfðingja illra anda rekur hann út illu andana.``
323En Jesús kallaði þá til sín og mælti við þá í líkingum: ,,Hvernig getur Satan rekið Satan út?
324Verði ríki sjálfu sér sundurþykkt, fær það ríki eigi staðist,
325og verði heimili sjálfu sér sundurþykkt, fær það heimili eigi staðist.
326Sé nú Satan risinn gegn sjálfum sér og orðinn sér sundurþykkur, fær hann ekki staðist, þá er úti um hann.
327Enginn getur brotist inn í hús hins sterka og rænt föngum hans, nema hann bindi áður hinn sterka, þá getur hann rænt hús hans.
328Sannlega segi ég yður: Allt verður mannanna börnum fyrirgefið, allar syndir þeirra og lastmælin, hve mjög sem þeir kunna að lastmæla,
329en sá sem lastmælir gegn heilögum anda, fær eigi fyrirgefningu um aldur, hann er sekur um eilífa synd.``
330En þeir höfðu sagt: ,,Óhreinn andi er í honum.``
331Nú koma móðir hans og bræður, standa úti og gera honum orð að koma.
332Mikill fjöldi sat í kringum hann, og var honum sagt: ,,Móðir þín, bræður og systur eru hér úti og spyrja eftir þér.``
333Hann svarar þeim: ,,Hver er móðir mín og bræður?``
334Og hann leit á þá, er kringum hann sátu, og segir: ,,Hér er móðir mín og bræður mínir!
335Hver, sem gjörir vilja Guðs, sá er bróðir minn, systir og móðir.``
41Aftur tók hann að kenna við vatnið. Svo mikill mannfjöldi safnaðist að honum, að hann varð að stíga í bát og sitja þar, úti á vatninu. En allt fólkið var á landi við vatnið.
42Hann kenndi þeim margt í dæmisögum og sagði við þá:
43,,Hlýðið á! Sáðmaður gekk út að sá,
44og þá er hann sáði, féll sumt hjá götunni, og fuglar komu og átu það upp.
45Sumt féll í grýtta jörð, þar sem var lítill jarðvegur, og það rann skjótt upp, því það hafði ekki djúpa jörð.
46En er sól hækkaði, visnaði það, og sökum þess að það hafði ekki rætur, skrælnaði það.
47Og sumt féll meðal þyrna, og þyrnarnir uxu og kæfðu það, og það bar ekki ávöxt.
48En sumt féll í góða jörð, kom upp, óx og bar ávöxt, það gaf þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan ávöxt.``
49Og hann sagði: ,,Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri!``
410Þegar hann var orðinn einn, spurðu þeir tólf og hinir, sem með honum voru, um dæmisögurnar.
411Hann svaraði þeim: ,,Yður er gefinn leyndardómur Guðs ríkis. Hinir, sem fyrir utan eru, fá allt í dæmisögum,
412að sjáandi sjái þeir og skynji ekki, heyrandi heyri þeir og skilji ekki, svo þeir snúi sér eigi og verði fyrirgefið.``
413Og hann segir við þá: ,,Þér skiljið eigi þessa dæmisögu. Hvernig fáið þér þá skilið nokkra dæmisögu?
414Sáðmaðurinn sáir orðinu.
415Það hjá götunni, þar sem orðinu er sáð, merkir þá sem heyra, en Satan kemur jafnskjótt og tekur burt orðið, sem í þá var sáð.
416Eins það sem sáð var í grýtta jörð, það merkir þá sem taka orðinu með fögnuði, um leið og þeir heyra það,
417en hafa enga rótfestu. Þeir eru hvikulir og er þrenging verður síðan eða ofsókn vegna orðsins, bregðast þeir þegar.
418Öðru var sáð meðal þyrna. Það merkir þá sem heyra orðið,
419en áhyggjur heimsins, tál auðæfanna og aðrar girndir koma til og kefja orðið, svo það ber engan ávöxt.
420Hitt, sem sáð var í góða jörð, merkir þá sem heyra orðið, taka við því og bera þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan ávöxt.``
421Og hann sagði við þá: ,,Ekki bera menn ljós inn og setja það undir mæliker eða bekk? Er það ekki sett á ljósastiku?
422Því að ekkert er hulið, að það verði eigi gjört opinbert, né leynt, að það komi ekki í ljós.
423Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri!``
424Enn sagði hann við þá: ,,Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða og við yður bætt.
425Því að þeim, sem hefur, mun gefið verða, og frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur.``
426Þá sagði hann: ,,Svo er Guðs ríki sem maður sái sæði í jörð.
427Hann sefur síðan og vakir, nætur og daga, en sæðið grær og vex, hann veit ekki með hverjum hætti.
428Sjálfkrafa ber jörðin ávöxt, fyrst stráið, þá axið og síðan fullvaxið hveiti í axinu.
429En þá er ávöxturinn er fullþroska, lætur hann þegar bera út sigðina, því að uppskeran er komin.``
430Og hann sagði: ,,Við hvað eigum vér að líkja Guðs ríki? Með hvaða dæmi eigum vér að lýsa því?
431Líkt er það mustarðskorni. Þegar því er sáð í mold, er það smærra hverju sáðkorni á jörðu.
432En eftir að því er sáð tekur það að spretta, það verður öllum jurtum meira og fær svo stórar greinar, að fuglar himins geta hreiðrað sig í skugga þess.``
433Í mörgum slíkum dæmisögum flutti hann þeim orðið, svo sem þeir gátu numið,
434og án dæmisagna talaði hann ekki til þeirra, en fyrir lærisveinum sínum skýrði hann allt, þegar þeir voru einir.
435Að kvöldi sama dags sagði hann við þá: ,,Förum yfir um!``
436Þeir skildu þá við mannfjöldann og tóku hann með sér, þar sem hann var, í bátnum, en aðrir bátar voru með honum.
437Þá brast á stormhrina mikil, og féllu öldurnar inn í bátinn, svo við lá, að hann fyllti.
438Jesús var í skutnum og svaf á kodda. Þeir vöktu hann og sögðu við hann: ,,Meistari, hirðir þú ekki um, að vér förumst?``
439Hann vaknaði, hastaði á vindinn og sagði við vatnið: ,,Þegi þú, haf hljótt um þig!`` Þá lægði vindinn og gerði stillilogn.
440Og hann sagði við þá: ,,Hví eruð þér hræddir, hafið þér enn enga trú?``
441En þeir urðu miklum ótta lostnir og sögðu hver við annan: ,,Hver er þessi? Jafnvel vindur og vatn hlýða honum.``
51Þeir komu nú yfir um vatnið í byggð Gerasena.
52Og um leið og Jesús sté úr bátnum, kom maður á móti honum frá gröfunum, haldinn óhreinum anda.
53Hann hafðist við í gröfunum, og enginn gat lengur bundið hann, ekki einu sinni með hlekkjum.
54Oft hafði hann verið fjötraður á fótum og höndum, en hann braut jafnóðum af sér hlekkina og sleit fjötrana, og gat enginn ráðið við hann.
55Allar nætur og daga var hann í gröfunum eða á fjöllum, æpti og lamdi sig grjóti.
56Þegar hann sá Jesú álengdar, hljóp hann og féll fram fyrir honum
57og æpti hárri röddu: ,,Hvað vilt þú mér, Jesús, sonur Guðs hins hæsta? Ég særi þig við Guð, kvel þú mig eigi!``
58Því að Jesús hafði sagt við hann: ,,Þú óhreini andi, far út af manninum.``
59Jesús spurði hann þá: ,,Hvað heitir þú?`` Hinn svaraði: ,,Hersing heiti ég, vér erum margir.``
510Og hann bað Jesú ákaft að senda þá ekki brott úr héraðinu.
511En þar í fjallinu var mikil svínahjörð á beit.
512Og þeir báðu hann: ,,Send oss í svínin, lát oss fara í þau!``
513Hann leyfði þeim það, og fóru þá óhreinu andarnir út og í svínin, og hjörðin, nær tveim þúsundum, ruddist fram af hamrinum í vatnið og drukknaði þar.
514En hirðarnir flýðu og sögðu tíðindin í borginni og sveitinni. Menn fóru þá að sjá, hvað gjörst hafði,
515komu til Jesú og sáu haldna manninn, sem hersingin hafði verið í, sitja þar klæddan og heilvita. Og þeir urðu hræddir.
516En sjónarvottar sögðu þeim, hvað fram hafði farið við haldna manninn, og frá svínunum.
517Og þeir tóku að biðja Jesú að fara burt úr héruðum þeirra.
518Þá er hann sté í bátinn, bað sá, er haldinn hafði verið, að fá að vera með honum.
519En Jesús leyfði honum það eigi, heldur sagði: ,,Far heim til þín og þinna, og seg þeim, hve mikið Drottinn hefur gjört fyrir þig og verið þér miskunnsamur.``
520Hann fór og tók að kunngjöra í Dekapólis, hve mikið Jesús hafði fyrir hann gjört, og undruðust það allir.
521Þegar Jesús kom aftur yfir um á bátnum, safnaðist að honum mikill mannfjöldi, þar sem hann var við vatnið.
522Þar kom og einn af samkundustjórunum, Jaírus að nafni, og er hann sá Jesú, féll hann til fóta honum,
523bað hann ákaft og sagði: ,,Dóttir mín litla er að dauða komin. Kom og legg hendur yfir hana, að hún læknist og lifi.``
524Jesús fór með honum. Og mikill mannfjöldi fylgdi honum, og var þröng um hann.
525Þar var kona, sem hafði haft blóðlát í tólf ár.
526Hún hafði orðið margt að þola hjá mörgum læknum, kostað til aleigu sinni, en engan bata fengið, öllu heldur versnað.
527Hún heyrði um Jesú og kom nú í mannþrönginni að baki honum og snart klæði hans.
528Hún hugsaði: ,,Ef ég fæ aðeins snert klæði hans, mun ég heil verða.``
529Jafnskjótt þvarr blóðlát hennar, og hún fann það á sér, að hún var heil af meini sínu.
530Jesús fann þegar á sjálfum sér, að kraftur hafði farið út frá honum, og hann sneri sér við í mannþrönginni og sagði: ,,Hver snart klæði mín?``
531Lærisveinar hans sögðu við hann: ,,Þú sérð, að mannfjöldinn þrengir að þér, og spyrð þó: Hver snart mig?``
532Hann litaðist um til að sjá, hver þetta hefði gjört,
533en konan, sem vissi, hvað fram við sig hafði farið, kom hrædd og skjálfandi, féll til fóta honum og sagði honum allan sannleikann.
534Jesús sagði við hana: ,,Dóttir, trú þín hefur bjargað þér. Far þú í friði, og ver heil meina þinna.``
535Meðan hann var að segja þetta, koma menn heiman frá samkundustjóranum og segja: ,,Dóttir þín er látin, hví ómakar þú meistarann lengur?``
536Jesús heyrði, hvað þeir sögðu, en gaf ekki um, heldur sagði við samkundustjórann: ,,Óttast ekki, trú þú aðeins.``
537Og nú leyfði hann engum að fylgja sér nema Pétri og þeim bræðrum Jakobi og Jóhannesi.
538Þeir koma að húsi samkundustjórans. Þar sér hann, að allt er í uppnámi, grátur mikill og kveinan.
539Hann gengur inn og segir við þá: ,,Hví hafið þér svo hátt og grátið? Barnið er ekki dáið, það sefur.``
540En þeir hlógu að honum. Þá lét hann alla fara út og tók með sér föður barnsins og móður og þá sem með honum voru, og gekk þar inn, sem barnið var.
541Og hann tók hönd barnsins og sagði: ,,Talíþa kúm!`` Það þýðir: ,,Stúlka litla, ég segi þér, rís upp!``
542Jafnskjótt reis stúlkan upp og fór að ganga um, en hún var tólf ára. Og menn urðu frá sér numdir af undrun.
543En hann lagði ríkt á við þá að láta engan vita þetta og bauð að gefa henni að eta.
61Þaðan fór Jesús og kom í ættborg sína, og lærisveinar hans fylgdu honum.
62Þegar hvíldardagur var kominn, tók hann að kenna í samkundunni, og þeir mörgu, sem á hlýddu, undruðust stórum. Þeir sögðu: ,,Hvaðan kemur honum þetta? Hver er sú speki, sem honum er gefin, og þau kraftaverk, sem gjörast fyrir hendur hans?
63Er þetta ekki smiðurinn, sonur Maríu, bróðir þeirra Jakobs, Jóse, Júdasar og Símonar? Og eru ekki systur hans hér hjá oss?`` Og þeir hneyksluðust á honum.
64Þá sagði Jesús: ,,Hvergi er spámaður minna metinn en í landi sínu, með frændum og heimamönnum.``
65Og hann gat ekki gjört þar neitt kraftaverk, nema hann lagði hendur yfir nokkra sjúka og læknaði þá.
66Og hann undraðist vantrú þeirra. Hann fór nú um þorpin þar í kring og kenndi.
67Og hann kallaði þá tólf til sín, tók að senda þá út, tvo og tvo, og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum.
68Hann bauð þeim að taka ekkert til ferðarinnar annað en staf, ekki brauð, mal né peninga í belti.
69Þeir skyldu hafa skó á fótum, en ekki tvo kyrtla.
610Og hann sagði við þá: ,,Hvar sem þér fáið inni, þar sé aðsetur yðar, uns þér leggið upp að nýju.
611En hvar sem ekki er tekið við yður né á yður hlýtt, þaðan skuluð þér fara og hrista dustið af fótum yðar þeim til vitnisburðar.``
612Þeir lögðu af stað og prédikuðu, að menn skyldu gjöra iðrun,
613ráku út marga illa anda og smurðu marga sjúka með olíu og læknuðu þá.
614Heródes konungur frétti þetta, enda var nafn Jesú orðið víðfrægt. Sögðu sumir: ,,Jóhannes skírari er risinn upp frá dauðum, þess vegna eru kraftarnir að verki í honum.``
615Aðrir sögðu: ,,Hann er Elía,`` enn aðrir: ,,Hann er spámaður eins og spámennirnir fornu.``
616Þegar Heródes heyrði þetta, sagði hann: ,,Jóhannes, sem ég lét hálshöggva, hann er upp risinn.``
617En Heródes hafði sent menn að taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródíasar, konu Filippusar, bróður síns. Hann hafði gengið að eiga hana,
618en Jóhannes hafði sagt við Heródes: ,,Þú mátt ekki eiga konu bróður þíns.``
619Þess vegna lagði Heródías fæð á Jóhannes og vildi deyða hann, en gat ekki,
620því að Heródes hafði beyg af honum og verndaði hann, þar eð hann vissi, að hann var maður réttlátur og heilagur. Hann komst í mikinn vanda, þegar hann hlýddi á mál hans, en þó var honum ljúft að hlusta á hann.
621En nú kom hentugur dagur; á afmæli sínu gjörði Heródes veislu gæðingum sínum, hershöfðingjum og fyrirmönnum Galíleu.
622Dóttir Heródíasar gekk þar inn og sté dans. Hún hreif Heródes og gesti hans, og konungur sagði við stúlkuna: ,,Bið mig hvers þú vilt, og mun ég veita þér.``
623Og hann sór henni: ,,Hvað sem þú biður um, það mun ég veita þér, allt að helmingi ríkis míns.``
624Hún gekk þá út og spurði móður sína: ,,Um hvað á ég að biðja?`` Hún svaraði: ,,Höfuð Jóhannesar skírara.``
625Jafnskjótt skundaði hún til konungs og bað hann: ,,Gef mér þegar á fati höfuð Jóhannesar skírara.``
626Konungur varð hryggur við, en vegna eiðsins og gesta sinna vildi hann ekki synja henni þessa,
627heldur sendi þegar varðmann og bauð að færa sér höfuð Jóhannesar. Hann fór og hjó af höfuð Jóhannesar í fangelsinu,
628kom með höfuð hans á fati og færði stúlkunni, en stúlkan móður sinni.
629Þegar lærisveinar hans fréttu þetta, komu þeir, tóku lík hans og lögðu í gröf.
630Postularnir komu nú aftur til Jesú og sögðu honum frá öllu því, er þeir höfðu gjört og kennt.
631Hann sagði við þá: ,,Komið þér nú á óbyggðan stað, svo að vér séum einir saman, og hvílist um stund.`` En fjöldi fólks var stöðugt að koma og fara, svo að þeir höfðu ekki einu sinni næði til að matast.
632Og þeir fóru á bátnum einir saman á óbyggðan stað.
633Menn sáu þá fara, og margir þekktu þá, og nú streymdi fólk þangað gangandi úr öllum borgunum og varð á undan þeim.
634Þegar Jesús steig á land, sá hann þar mikinn mannfjölda, og hann kenndi í brjósti um þá, því að þeir voru sem sauðir, er engan hirði hafa. Og hann kenndi þeim margt.
635Þá er mjög var áliðið dags, komu lærisveinar hans að máli við hann og sögðu: ,,Hér er engin mannabyggð og langt á daginn liðið.
636Lát þá fara, að þeir geti náð til býla og þorpa hér í kring og keypt sér eitthvað til matar.``
637En hann svaraði þeim: ,,Gefið þeim sjálfir að eta.`` Þeir svara honum: ,,Eigum vér að fara og kaupa brauð fyrir tvö hundruð denara og gefa þeim að eta?``
638Jesús spyr þá: ,,Hve mörg brauð hafið þér? Farið og gætið að.`` Þeir hugðu að og svöruðu: ,,Fimm brauð og tvo fiska.``
639Þá bauð hann þeim að láta alla setjast í grængresið og skipta sér í hópa.
640Þeir settust niður í flokkum, hundrað í sumum, en fimmtíu í öðrum.
641Og hann tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut brauðin og gaf lærisveinunum til að bera fram fyrir mannfjöldann. Fiskunum tveim skipti hann og meðal allra.
642Og þeir neyttu allir og urðu mettir.
643Þeir tóku saman brauðbitana, er fylltu tólf körfur, svo og fiskleifarnar.
644En þeir, sem brauðanna neyttu, voru fimm þúsund karlmenn.
645Tafarlaust knúði hann lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan yfir til Betsaídu, meðan hann sendi fólkið brott.
646Og þá er hann hafði kvatt það, fór hann til fjalls að biðjast fyrir.
647Þegar kvöld var komið, var báturinn á miðju vatni, en hann einn á landi.
648Hann sá, að þeim var þungur róðurinn, því að vindur var á móti þeim, og er langt var liðið nætur kemur hann til þeirra, gangandi á vatninu, og ætlar fram hjá þeim.
649Þegar þeir sáu hann ganga á vatninu, hugðu þeir, að þar færi vofa, og æptu upp yfir sig.
650Því að allir sáu þeir hann og varð þeim bilt við. En Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: ,,Verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir.``
651Og hann sté í bátinn til þeirra og lægði þá vindinn. Og þeir urðu öldungis agndofa,
652enda höfðu þeir ekki skilið það, sem gjörst hafði með brauðin, hjörtu þeirra voru blind.
653Þegar þeir höfðu náð yfir um, komu þeir að landi við Genesaret og lögðu þar að.
654Um leið og þeir stigu úr bátnum, þekktu menn hann.
655Og fólk tók að streyma fram og aftur um allt það hérað og bera sjúklinga í burðarrekkjum hvert þangað, sem þeir heyrðu, að hann væri.
656Og hvar sem hann kom í þorp, borgir eða á bæi, lögðu menn sjúka á torgin og báðu hann, að þeir fengju rétt að snerta fald klæða hans, og allir þeir, sem snertu hann, urðu heilir.
71Nú safnast að honum farísear og nokkrir fræðimenn, komnir frá Jerúsalem.
72Þeir sáu, að sumir lærisveina hans neyttu matar með vanhelgum, það er óþvegnum höndum.
73En farísear, og reyndar Gyðingar allir, eta ekki nema þeir taki áður handlaugar, og fylgja þeir svo erfðavenju forfeðra sinna.
74Og ekki neyta þeir matar, þegar þeir koma frá torgi, nema þeir hreinsi sig áður. Margt annað hafa þeir gengist undir að rækja, svo sem að hreinsa bikara, könnur og eirkatla.
75Farísearnir og fræðimennirnir spyrja hann: ,,Hvers vegna fylgja lærisveinar þínir ekki erfðavenju forfeðranna, heldur neyta matar með vanhelgum höndum?``
76Jesús svarar þeim: ,,Sannspár var Jesaja um yður hræsnara, þar sem ritað er: Þessi lýður heiðrar mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt frá mér.
77Til einskis dýrka þeir mig, er þeir kenna þá lærdóma, sem eru mannasetningar einar.
78Þér hafnið boðum Guðs, en haldið erfikenning manna.``
79Enn sagði hann við þá: ,,Listavel gjörið þér að engu boð Guðs, svo þér getið rækt erfikenning yðar.
710Móse sagði: ,Heiðra föður þinn og móður þína.` og ,Hver sem formælir föður eða móður, skal dauða deyja.`
711En þér segið: Ef maður segir við föður sinn eða móður: ,Það, sem þér hefði getað orðið til styrktar frá mér, er korban,` það er musterisfé,
712þá leyfið þér honum ekki framar að gjöra neitt fyrir föður sinn eða móður.
713Þannig látið þér erfikenning yðar, sem þér fylgið fram, ógilda orð Guðs. Og margt annað gjörið þér þessu líkt.``
714Aftur kallaði hann til sín mannfjöldann og sagði: ,,Heyrið mig allir, og skiljið.
715Ekkert er það utan mannsins, er saurgi hann, þótt inn í hann fari. Hitt saurgar manninn, sem út frá honum fer.`` [
716Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri!]
717Þegar hann var kominn inn frá fólkinu, spurðu lærisveinar hans hann um líkinguna.
718Og hann segir við þá: ,,Eruð þér einnig svo skilningslausir? Skiljið þér eigi, að ekkert, sem fer inn í manninn utan frá, getur saurgað hann?
719Því að ekki fer það inn í hjarta hans, heldur maga og út síðan í safnþróna.`` Þannig lýsti hann alla fæðu hreina.
720Og hann sagði: ,,Það sem fer út frá manninum, það saurgar manninn.
721Því að innan frá, úr hjarta mannsins, koma hinar illu hugsanir, saurlifnaður, þjófnaður, manndráp,
722hórdómur, ágirnd, illmennska, sviksemi, taumleysi, öfund, lastmælgi, hroki, heimska.
723Allt þetta illa kemur innan að og saurgar manninn.``
724Hann tók sig upp þaðan og hélt til byggða Týrusar. Þar fór hann inn í hús og vildi engan láta vita. En eigi fékk hann dulist.
725Kona ein frétti þegar af honum og kom og féll honum til fóta, en dóttir hennar hafði óhreinan anda.
726Konan var heiðin, ættuð úr Fönikíu sýrlensku. Hún bað hann að reka illa andann út af dóttur sinni.
727Hann sagði við hana: ,,Lofaðu börnunum að seðjast fyrst, ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.``
728Hún svaraði honum: ,,Satt er það, herra, þó eta hundarnir undir borðinu af molum barnanna.``
729Og hann sagði við hana: ,,Vegna þessara orða skaltu heim snúa, illi andinn er farinn úr dóttur þinni.``
730Hún fór heim, fann barnið liggjandi á rúminu, og illi andinn var farinn.
731Síðan hélt hann úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólisbyggðir miðjar til Galíleuvatns.
732Þá færa þeir til hans mann, daufan og málhaltan, og biðja hann að leggja hönd sína yfir hann.
733Jesús leiddi hann afsíðis frá fólkinu, stakk fingrum sínum í eyru honum og vætti tungu hans með munnvatni sínu.
734Þá leit hann upp til himins, andvarpaði og sagði við hann: ,,Effaþa,`` það er: Opnist þú.
735Og eyru hans opnuðust, og haft tungu hans losnaði, og hann talaði skýrt.
736Jesús bannaði þeim að segja þetta neinum, en svo mjög sem hann bannaði þeim, því frekar sögðu þeir frá því.
737Menn undruðust næsta mjög og sögðu: ,,Allt gjörir hann vel, daufa lætur hann heyra og mállausa mæla.``
81Um þessar mundir bar enn svo við, að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar. Jesús kallar þá til sín lærisveinana og segir við þá:
82,,Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Þeir hafa nú hjá mér verið þrjá daga og hafa ekkert til matar.
83Láti ég þá fara fastandi heim til sín, örmagnast þeir á leiðinni, en sumir þeirra eru langt að.``
84Þá svöruðu lærisveinarnir: ,,Hvar er hægt að fá brauð til að metta þetta fólk hér í óbyggðum?``
85Hann spurði þá: ,,Hve mörg brauð hafið þér?`` Þeir sögðu: ,,Sjö.``
86Þá bauð hann fólkinu að setjast á jörðina, tók brauðin sjö, gjörði þakkir og braut þau og gaf lærisveinum sínum, að þeir bæru þau fram. En þeir báru þau fram fyrir fólkið.
87Þeir höfðu og fáeina smáfiska. Hann þakkaði Guði og bauð, að einnig þeir skyldu fram bornir.
88Menn neyttu og urðu mettir. Síðan tóku þeir saman leifarnar, sjö körfur.
89En þeir voru um fjórar þúsundir. Síðan lét hann þá fara.
810Og hann sté þegar í bátinn með lærisveinum sínum og kom í Dalmanútabyggðir.
811Þangað komu farísear og tóku að þrátta við hann, þeir vildu freista hans og kröfðu hann um tákn af himni.
812Hann andvarpaði þungan innra með sér og mælti: ,,Hví heimtar þessi kynslóð tákn? Sannlega segi ég yður: Tákn verður alls ekki gefið þessari kynslóð.``
813Hann skildi síðan við þá, sté aftur í bátinn og fór yfir um.
814Þeir höfðu gleymt að taka brauð, höfðu ekki nema eitt brauð með sér í bátnum.
815Jesús áminnti þá og sagði: ,,Gætið yðar, varist súrdeig farísea og súrdeig Heródesar.``
816En þeir ræddu sín á milli, að þeir hefðu ekki brauð.
817Hann varð þess vís og segir við þá: ,,Hvað eruð þér að tala um, að þér hafið ekki brauð? Skynjið þér ekki enn né skiljið? Eru hjörtu yðar forhert?
818Þér hafið augu, sjáið þér ekki? Þér hafið eyru, heyrið þér ekki? Eða munið þér ekki?
819Þegar ég braut brauðin fimm handa fimm þúsundum, hve margar körfur fullar af brauðbitum tókuð þér saman?`` Þeir svara honum: ,,Tólf.``
820,,Eða brauðin sjö handa fjórum þúsundunum, hve margar körfur fullar af brauðbitum tókuð þér þá saman?`` Þeir svara: ,,Sjö.``
821Og hann sagði við þá: ,,Skiljið þér ekki enn?``
822Þeir koma nú til Betsaídu. Þar færa menn til Jesú blindan mann og biðja, að hann snerti hann.
823Hann tók í hönd hins blinda, leiddi hann út úr þorpinu, skyrpti í augu hans, lagði hendur yfir hann og spurði: ,,Sér þú nokkuð?``
824Hann leit upp og mælti: ,,Ég sé menn, ég greini þá líkt og tré, þeir ganga.``
825Þá lagði hann aftur hendur yfir augu hans, og nú sá hann skýrt, varð albata og heilskyggn á allt.
826Jesús sendi hann síðan heim til sín og sagði: ,,Inn í þorpið máttu ekki fara.``
827Jesús fór nú ásamt lærisveinum sínum til þorpanna hjá Sesareu Filippí. Á leiðinni spurði hann lærisveina sína: ,,Hvern segja menn mig vera?``
828Þeir svöruðu honum: ,,Jóhannes skírara, aðrir Elía og aðrir einn af spámönnunum.``
829Og hann spurði þá: ,,En þér, hvern segið þér mig vera?`` Pétur svaraði honum: ,,Þú ert Kristur.``
830Og hann lagði ríkt á við þá að segja engum frá sér.
831Þá tók hann að kenna þeim: ,,Mannssonurinn á margt að líða, honum mun útskúfað verða af öldungum, æðstu prestum og fræðimönnum, hann mun líflátinn, en upp rísa eftir þrjá daga.``
832Þetta sagði hann berum orðum. En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann.
833Jesús sneri sér við, leit til lærisveina sinna, ávítaði Pétur og sagði: ,,Vík frá mér, Satan, eigi hugsar þú um það, sem Guðs er, heldur það, sem manna er.``
834Og hann kallaði til sín mannfjöldann ásamt lærisveinum sínum og sagði við þá: ,,Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér.
835Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins, mun bjarga því.
836Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn, en fyrirgjöra sálu sinni?
837Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína?
838En þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð hjá þessari ótrúu, syndugu kynslóð, mun Mannssonurinn blygðast sín fyrir, er hann kemur í dýrð föður síns með heilögum englum.``
91Og hann sagði við þá: ,,Sannlega segi ég yður: Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Guðs ríki komið með krafti.``
92Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall, að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra,
93og klæði hans urðu fannhvít og skínandi, og fær enginn bleikir á jörðu svo hvítt gjört.
94Og þeim birtist Elía ásamt Móse, og voru þeir á tali við Jesú.
95Þá tekur Pétur til máls og segir við Jesú: ,,Rabbí, gott er, að vér erum hér. Gjörum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.``
96Hann vissi ekki, hvað hann átti að segja, enda urðu þeir mjög skelfdir.
97Þá kom ský og skyggði yfir þá, og rödd kom úr skýinu: ,,Þessi er minn elskaði sonur, hlýðið á hann!``
98Og snögglega, þegar þeir litu í kring, sáu þeir engan framar hjá sér nema Jesú einan.
99Á leiðinni ofan fjallið bannaði hann þeim að segja nokkrum frá því, er þeir höfðu séð, fyrr en Mannssonurinn væri risinn upp frá dauðum.
910Þeir festu orðin í minni og ræddu um, hvað væri að rísa upp frá dauðum.
911Og þeir spurðu hann: ,,Hví segja fræðimennirnir, að Elía eigi fyrst að koma?``
912Hann svaraði þeim: ,,Víst kemur Elía fyrst og færir allt í lag. En hvernig er ritað um Mannssoninn? Á hann ekki margt að líða og smáður verða?
913En ég segi yður: Elía er kominn, og þeir gjörðu honum allt, sem þeir vildu, eins og ritað er um hann.``
914Þegar þeir komu til lærisveinanna, sáu þeir mannfjölda mikinn kringum þá og fræðimenn að þrátta við þá.
915En um leið og fólkið sá hann, sló þegar felmtri á alla, og þeir hlupu til og heilsuðu honum.
916Hann spurði þá: ,,Um hvað eruð þér að þrátta við þá?``
917En einn úr mannfjöldanum svaraði honum: ,,Meistari, ég færði til þín son minn, sem málleysis andi er í.
918Hvar sem andinn grípur hann, slengir hann honum flötum, og hann froðufellir, gnístir tönnum og stirðnar upp. Ég bað lærisveina þína að reka hann út, en þeir gátu það ekki.``
919Jesús svarar þeim: ,,Ó, þú vantrúa kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður? Hversu lengi á ég að umbera yður? Færið hann til mín.``
920Þeir færðu hann þá til Jesú, en um leið og andinn sá hann, teygði hann drenginn ákaflega, hann féll til jarðar, veltist um og froðufelldi.
921Jesús spurði þá föður hans: ,,Hve lengi hefur honum liðið svo?`` Hann sagði: ,,Frá bernsku.
922Og oft hefur hann kastað honum bæði í eld og vatn til að fyrirfara honum. En ef þú getur nokkuð, þá sjá aumur á okkur og hjálpa okkur.``
923Jesús sagði við hann: ,,Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.``
924Jafnskjótt hrópaði faðir sveinsins: ,,Ég trúi, hjálpa þú vantrú minni.``
925Nú sér Jesús, að mannfjöldi þyrpist að. Þá hastar hann á óhreina andann og segir: ,,Þú dumbi, daufi andi, ég býð þér, far út af honum, og kom aldrei framar í hann.``
926Þá æpti andinn, teygði hann mjög og fór, en sveinninn varð sem nár, svo að flestir sögðu: ,,Hann er dáinn.``
927En Jesús tók í hönd honum og reisti hann upp, og hann stóð á fætur.
928Þegar Jesús var kominn inn og orðinn einn með lærisveinum sínum, spurðu þeir hann: ,,Hví gátum vér ekki rekið hann út?``
929Hann mælti: ,,Þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn.``
930Þeir héldu nú brott þaðan og fóru um Galíleu, en hann vildi ekki, að neinn vissi það,
931því að hann var að kenna lærisveinum sínum. Hann sagði þeim: ,,Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur, og þeir munu lífláta hann, en þá er hann hefur líflátinn verið, mun hann upp rísa eftir þrjá daga.``
932En þeir skildu ekki það sem hann sagði og þorðu ekki að spyrja hann.
933Þeir komu til Kapernaum. Þegar hann var kominn inn, spurði hann þá: ,,Hvað voruð þér að ræða á leiðinni?``
934En þeir þögðu. Þeir höfðu verið að ræða það sín á milli á leiðinni, hver væri mestur.
935Hann settist niður, kallaði á þá tólf og sagði við þá: ,,Hver sem vill vera fremstur, sé síðastur allra og þjónn allra.``
936Og hann tók lítið barn, setti það meðal þeirra, tók það sér í faðm og sagði við þá:
937,,Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni, tekur við mér, og hver sem tekur við mér, tekur ekki aðeins við mér, heldur og við þeim er sendi mig.``
938Jóhannes sagði við hann: ,,Meistari, vér sáum mann reka út illa anda í þínu nafni, og vildum vér varna honum þess, af því að hann fylgdi oss ekki.``
939Jesús sagði: ,,Varnið honum þess ekki, því að enginn er sá, að hann gjöri kraftaverk í mínu nafni og geti þegar á eftir talað illa um mig.
940Sá sem er ekki á móti oss, er með oss.
941Hver sem gefur yður bikar vatns að drekka, vegna þess að þér eruð Krists, sannlega segi ég yður, hann mun alls ekki missa af launum sínum.
942Hverjum þeim, sem tælir til falls einn af þessum smælingjum, sem trúa, væri betra að vera varpað í hafið með mylnustein um hálsinn.
943Ef hönd þín tælir þig til falls, þá sníð hana af. Betra er þér handarvana inn að ganga til lífsins en hafa báðar hendur og fara til helvítis, í hinn óslökkvanda eld. [
944Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.]
945Ef fótur þinn tælir þig til falls, þá sníð hann af. Betra er þér höltum inn að ganga til lífsins en hafa báða fætur og verða kastað í helvíti. [
946Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.]
947Og ef auga þitt tælir þig til falls, þá ríf það úr. Betra er þér eineygðum inn að ganga í Guðs ríki en hafa bæði augu og verða kastað í helvíti,
948þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.
949Sérhver mun eldi saltast.
950Saltið er gott, en ef saltið missir seltuna, með hverju viljið þér þá krydda það? Hafið salt í sjálfum yður, og haldið frið yðar á milli.``
101Hann tók sig upp þaðan og hélt til byggða Júdeu og yfir um Jórdan. Fjöldi fólks safnast enn til hans, og hann kenndi þeim, eins og hann var vanur.
102Farísear komu og spurðu hann, hvort maður mætti skilja við konu sína. Þeir vildu freista hans.
103Hann svaraði þeim: ,,Hvað hefur Móse boðið yður?``
104Þeir sögðu: ,,Móse leyfði að ,rita skilnaðarbréf og skilja við hana.```
105Jesús mælti þá til þeirra: ,,Vegna harðúðar hjartna yðar ritaði hann yður þetta boðorð,
106en frá upphafi sköpunar ,gjörði Guð þau karl og konu.
107Fyrir því skal maður yfirgefa föður sinn og móður og bindast konu sinni,
108og þau tvö skulu verða einn maður.` Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður.
109Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja.``
1010Þegar lærisveinarnir voru komnir inn, spurðu þeir hann aftur um þetta.
1011En hann sagði við þá: ,,Sá sem skilur við konu sína og kvænist annarri, drýgir hór gegn henni.
1012Og ef kona skilur við mann sinn og giftist öðrum, drýgir hún hór.``
1013Menn færðu börn til hans, að hann snerti þau, en lærisveinarnir átöldu þá.
1014Þegar Jesús sá það, sárnaði honum, og hann mælti við þá: ,,Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki.
1015Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma.``
1016Og hann tók þau sér í faðm, lagði hendur yfir þau og blessaði þau.
1017Þegar hann var að leggja af stað, kom maður hlaupandi, féll á kné fyrir honum og spurði hann: ,,Góði meistari, hvað á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?``
1018Jesús sagði við hann: ,,Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn.
1019Þú kannt boðorðin: ,Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni, þú skalt ekki pretta, heiðra föður þinn og móður.```
1020Hinn svaraði honum: ,,Meistari, alls þessa hef ég gætt frá æsku.``
1021Jesús horfði á hann með ástúð og sagði við hann: ,,Eins er þér vant. Far þú, sel allt, sem þú átt, og gef fátækum, og munt þú fjársjóð eiga á himni. Kom síðan, og fylg mér.``
1022En hann varð dapur í bragði við þessi orð og fór burt hryggur, enda átti hann miklar eignir.
1023Þá leit Jesús í kring og sagði við lærisveina sína: ,,Hve torvelt verður þeim, sem auðinn hafa, að ganga inn í Guðs ríki.``
1024Lærisveinunum brá mjög við orð Jesú, en hann sagði aftur við þá: ,,Börn, hve torvelt er að komast inn í Guðs ríki.
1025Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.``
1026En þeir urðu steini lostnir og sögðu sín á milli: ,,Hver getur þá orðið hólpinn?``
1027Jesús horfði á þá og sagði: ,,Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en fyrir Guði. Guð megnar allt.``
1028Þá sagði Pétur við hann: ,,Vér yfirgáfum allt og fylgdum þér.``
1029Jesús sagði: ,,Sannlega segi ég yður, að enginn hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, móður eða föður, börn eða akra vegna mín og fagnaðarerindisins,
1030án þess að hann fái hundraðfalt aftur, nú á þessum tíma heimili, bræður og systur, mæður, börn og akra, jafnframt ofsóknum, og í hinum komandi heimi eilíft líf.
1031En margir hinir fyrstu munu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.``
1032Þeir voru nú á leið upp til Jerúsalem. Jesús gekk á undan þeim, en þeir voru skelfdir, og þeir sem eftir fylgdu voru hræddir. Og enn tók hann til sín þá tólf og fór að segja þeim, hvað fram við sig ætti að koma.
1033,,Nú förum vér upp til Jerúsalem. Þar verður Mannssonurinn framseldur æðstu prestum og fræðimönnum. Þeir munu dæma hann til dauða og framselja hann heiðingjum.
1034Og þeir munu hæða hann, hrækja á hann, húðstrýkja og lífláta, en eftir þrjá daga mun hann upp rísa.``
1035Þá komu til hans Jakob og Jóhannes, synir Sebedeusar, og sögðu við hann: ,,Meistari, okkur langar, að þú gjörir fyrir okkur það sem við ætlum að biðja þig.``
1036Hann spurði þá: ,,Hvað viljið þið, að ég gjöri fyrir ykkur?``
1037Þeir svöruðu: ,,Veit okkur, að við fáum að sitja þér við hlið í dýrð þinni, annar til hægri handar þér og hinn til vinstri.``
1038Jesús sagði við þá: ,,Þið vitið ekki, hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik, sem ég drekk, eða skírst þeirri skírn, sem ég skírist?``
1039Þeir sögðu við hann: ,,Það getum við.`` Jesús mælti: ,,Þann kaleik, sem ég drekk, munuð þið drekka, og þið munuð skírast þeirri skírn, sem ég skírist.
1040En mitt er ekki að veita, hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim, sem það er fyrirbúið.``
1041Þegar hinir tíu heyrðu þetta, gramdist þeim við þá Jakob og Jóhannes.
1042En Jesús kallaði þá til sín og mælti: ,,Þér vitið, að þeir, sem teljast ráða fyrir þjóðum, drottna yfir þeim, og höfðingjar þeirra láta menn kenna á valdi sínu.
1043En eigi sé svo meðal yðar, heldur sé sá, sem mikill vill verða meðal yðar, þjónn yðar.
1044Og sá er vill fremstur vera meðal yðar, sé allra þræll.
1045Því að Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.``
1046Þeir komu til Jeríkó. Og þegar hann fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda, sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður.
1047Þegar hann heyrði, að þar færi Jesús frá Nasaret, tók hann að hrópa: ,,Sonur Davíðs, Jesús, miskunna þú mér!``
1048Margir höstuðu á hann, að hann þegði, en hann hrópaði því meir: ,,Sonur Davíðs, miskunna þú mér!``
1049Jesús nam staðar og sagði: ,,Kallið á hann.`` Þeir kalla á blinda manninn og segja við hann: ,,Vertu hughraustur, statt upp, hann kallar á þig.``
1050Hann kastaði frá sér yfirhöfn sinni, spratt á fætur og kom til Jesú.
1051Jesús spurði hann: ,,Hvað vilt þú, að ég gjöri fyrir þig?`` Blindi maðurinn svaraði honum: ,,Rabbúní, að ég fái aftur sjón.``
1052Jesús sagði við hann: ,,Far þú, trú þín hefur bjargað þér.`` Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferðinni.
111Þegar þeir nálgast Jerúsalem og koma til Betfage og Betaníu við Olíufjallið, sendir hann tvo lærisveina sína
112og segir við þá: ,,Farið í þorpið hér framundan ykkur. Um leið og þið komið þangað, munuð þið finna fola bundinn, sem enginn hefur enn komið á bak. Leysið hann, og komið með hann.
113Ef einhver spyr ykkur: ,Hvers vegna gjörið þið þetta?` Þá svarið: ,Herrann þarf hans við, hann sendir hann jafnskjótt aftur hingað.```
114Þeir fóru og fundu folann bundinn við dyr úti á strætinu og leystu hann.
115Nokkrir sem stóðu þar, sögðu við þá: ,,Hvers vegna eruð þið að leysa folann?``
116Þeir svöruðu eins og Jesús hafði sagt, og þeir létu þá fara.
117Síðan færðu þeir Jesú folann og lögðu á hann klæði sín, en hann settist á bak.
118Og margir breiddu klæði sín á veginn, en aðrir lim, sem þeir höfðu skorið á völlunum.
119Þeir sem á undan fóru og eftir fylgdu, hrópuðu: ,,Hósanna! Blessaður sé sá sem kemur, í nafni Drottins!
1110Blessað sé hið komandi ríki föður vors Davíðs! Hósanna í hæstum hæðum!``
1111Hann fór inn í Jerúsalem og í helgidóminn. Þar leit hann yfir allt, en þar sem komið var kvöld, fór hann til Betaníu með þeim tólf.
1112Á leiðinni frá Betaníu morguninn eftir kenndi hann hungurs.
1113Þá sá hann álengdar laufgað fíkjutré og fór að gá, hvort hann fyndi nokkuð á því. En þegar hann kom að því, fann hann ekkert nema blöð, enda var ekki fíknatíð.
1114Hann sagði þá við tréð: ,,Enginn neyti framar ávaxtar af þér að eilífu!`` Þetta heyrðu lærisveinar hans.
1115Þeir komu til Jerúsalem, og hann gekk í helgidóminn og tók að reka út þá, sem voru að selja þar og kaupa, og hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna.
1116Og engum leyfði hann að bera neitt um helgidóminn.
1117Og hann kenndi þeim og sagði: ,,Er ekki ritað: ,Hús mitt á að vera bænahús fyrir allar þjóðir?` En þér hafið gjört það að ræningjabæli.``
1118Æðstu prestarnir og fræðimennirnir heyrðu þetta og leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum. Þeim stóð ótti af honum, því að allur lýðurinn hreifst mjög af kenningu hans.
1119Þegar leið að kvöldi, fóru þeir úr borginni.
1120Árla morguns fóru þeir hjá fíkjutrénu og sáu, að það var visnað frá rótum.
1121Pétur minntist þess, sem gerst hafði, og segir við hann: ,,Rabbí, sjáðu! fíkjutréð, sem þú formæltir, er visnað.``
1122Jesús svaraði þeim: ,,Trúið á Guð.
1123Sannlega segi ég yður: Hver sem segir við fjall þetta: ,Lyft þér upp, og steyp þér í hafið,` og efar ekki í hjarta sínu, heldur trúir, að svo fari sem hann mælir, honum mun verða að því.
1124Fyrir því segi ég yður: Hvers sem þér biðjið í bæn yðar, þá trúið, að þér hafið öðlast það, og yður mun það veitast.
1125Og þegar þér eruð að biðja, þá fyrirgefið, ef yður þykir nokkuð við einhvern, til þess að faðir yðar á himnum fyrirgefi einnig yður misgjörðir yðar. [
1126Ef þér fyrirgefið ekki, mun faðir yðar á himnum ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar. ]``
1127Þeir koma aftur til Jerúsalem, og þegar hann var á gangi í helgidóminum, koma til hans æðstu prestarnir, fræðimennirnir og öldungarnir
1128og segja við hann: ,,Með hvaða valdi gjörir þú þetta? Hver gaf þér það vald, að þú gjörir þetta?``
1129Jesús sagði við þá: ,,Ég vil leggja eina spurningu fyrir yður. Svarið henni, og ég mun segja yður, með hvaða valdi ég gjöri þetta.
1130Var skírn Jóhannesar frá himni eða frá mönnum? Svarið mér!``
1131Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: ,,Ef vér svörum: Frá himni, spyr hann: Hví trúðuð þér honum þá ekki?
1132Eða ættum vér að svara: Frá mönnum?`` _ það þorðu þeir ekki fyrir lýðnum, því allir töldu, að Jóhannes hefði verið sannur spámaður.
1133Þeir svöruðu Jesú: ,,Vér vitum það ekki.`` Jesús sagði við þá: ,,Ég segi yður þá ekki heldur, með hvaða valdi ég gjöri þetta.``
121Og hann tók að tala til þeirra í dæmisögum: ,,Maður plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr landi.
122Á settum tíma sendi hann þjón til vínyrkjanna að fá hjá þeim hlut af ávexti víngarðsins.
123En þeir tóku hann og börðu og sendu burt tómhentan.
124Aftur sendi hann til þeirra annan þjón. Hann lömdu þeir í höfuðið og svívirtu.
125Enn sendi hann annan, og hann drápu þeir, og marga fleiri ýmist börðu þeir eða drápu.
126Einn átti hann eftir enn, elskaðan son. Hann sendi hann síðastan til þeirra og sagði: ,Þeir munu virða son minn.`
127En vínyrkjar þessir sögðu sín á milli: ,Þetta er erfinginn. Förum og drepum hann, þá fáum vér arfinn.`
128Og þeir tóku hann og drápu og köstuðu honum út fyrir víngarðinn.
129Hvað mun nú eigandi víngarðsins gjöra? Hann mun koma, tortíma vínyrkjunum og fá öðrum víngarðinn.
1210Hafið þér eigi lesið þessa ritningu: Sá steinn, sem smiðirnir höfnuðu, er orðinn hyrningarsteinn.
1211Þetta er verk Drottins, og undursamlegt er það í augum vorum.``
1212Þeir vildu taka hann höndum, en óttuðust fólkið. Þeir skildu, að hann átti við þá með dæmisögunni. Og þeir yfirgáfu hann og gengu burt.
1213Þá sendu þeir til hans nokkra farísea og Heródesarsinna, og skyldu þeir veiða hann í orðum.
1214Þeir koma og segja við hann: ,,Meistari, vér vitum, að þú ert sannorður og hirðir ekki um álit neins, enda gjörir þú þér engan mannamun, heldur kennir Guðs veg í sannleika. Leyfist að gjalda keisaranum skatt eða ekki? Eigum vér að gjalda eða ekki gjalda?``
1215En hann sá hræsni þeirra og sagði við þá: ,,Hví freistið þér mín? Fáið mér denar, látið mig sjá.``
1216Þeir fengu honum pening. Hann spyr: ,,Hvers mynd og yfirskrift er þetta?`` Þeir svöruðu: ,,Keisarans.``
1217En Jesús sagði við þá: ,,Gjaldið keisaranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er.`` Og þá furðaði stórlega á honum.
1218Saddúkear komu til hans, en þeir neita því, að upprisa sé til, og sögðu við hann:
1219,,Meistari, Móse segir oss í ritningunum, ,að deyi maður barnlaus, en láti eftir sig konu, skuli bróðir hans ganga að eiga ekkjuna og vekja honum niðja.`
1220Nú voru sjö bræður. Sá fyrsti tók sér konu, en dó barnlaus.
1221Annar bróðirinn gekk að eiga hana og dó barnlaus. Eins hinn þriðji,
1222og allir sjö urðu barnlausir. Síðast allra dó konan.
1223Í upprisunni, þegar menn rísa upp, kona hvers þeirra verður hún þá? Allir sjö höfðu átt hana.``
1224Jesús svaraði þeim: ,,Er það ekki þetta, sem veldur því, að þér villist: Þér þekkið ekki ritningarnar né mátt Guðs?
1225Þegar menn rísa upp frá dauðum, kvænast þeir hvorki né giftast. Þeir eru sem englar á himnum.
1226En um þá dauðu, að þeir rísa upp, hafið þér ekki lesið það í bók Móse, í sögunni um þyrnirunninn? Guð segir við Móse: ,Ég er Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs.`
1227Ekki er hann Guð dauðra heldur lifenda. Þér villist stórlega.``
1228Þá kom til hans fræðimaður einn. Hann hafði hlýtt á orðaskipti þeirra og fann, að Jesús hafði svarað þeim vel. Hann spurði: ,,Hvert er æðst allra boðorða?``
1229Jesús svaraði: ,,Æðst er þetta: ,Heyr, Ísrael! Drottinn, Guð vor, hann einn er Drottinn.
1230Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum.`
1231Annað er þetta: ,Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.` Ekkert boðorð annað er þessum meira.``
1232Fræðimaðurinn sagði þá við hann: ,,Rétt er það, meistari, satt sagðir þú, að einn er hann og enginn er annar en hann.
1233Og að elska hann af öllu hjarta, öllum skilningi og öllum mætti og elska náungann eins og sjálfan sig, það er öllum brennifórnum og sláturfórnum meira.``
1234Jesús sá, að hann svaraði viturlega, og sagði við hann: ,,Þú ert ekki fjarri Guðs ríki.`` Og enginn þorði framar að spyrja hann.
1235Þegar Jesús var að kenna í helgidóminum, sagði hann: ,,Hvernig geta fræðimennirnir sagt, að Kristur sé sonur Davíðs?
1236Sjálfur mælti Davíð af heilögum anda: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar, þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni.
1237Davíð kallar hann sjálfur drottin. Hvernig getur hann þá verið sonur hans?`` Og hinn mikli mannfjöldi hlýddi fúslega á hann.
1238Í kenningu sinni sagði hann: ,,Varist fræðimennina, sem fýsir að ganga í síðskikkjum og láta heilsa sér á torgum,
1239vilja skipa æðsta bekk í samkundum og hefðarsæti í veislum.
1240Þeir eta upp heimili ekkna og flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá því þyngri dóm.``
1241Jesús settist gegnt fjárhirslunni og horfði á fólkið leggja peninga í hana. Margir auðmenn lögðu þar mikið.
1242Þá kom ekkja ein fátæk og lét þar tvo smápeninga, eins eyris virði.
1243Og hann kallaði til sín lærisveina sína og sagði við þá: ,,Sannlega segi ég yður, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir, er lögðu í fjárhirsluna.
1244Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum, en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alla björg sína.``
131Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum, segir einn lærisveina hans við hann: ,,Meistari, lít á, hvílíkir steinar, hvílíkar byggingar!``
132Jesús svaraði honum: ,,Sérðu þessar miklu byggingar? Ekki mun eftir látinn steinn yfir steini, er eigi sé niður brotinn.``
133Þá er hann sat á Olíufjallinu gegnt helgidóminum, spurðu hann einslega þeir Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés:
134,,Seg þú oss, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess, að allt þetta sé að koma fram?``
135En Jesús tók að segja þeim: ,,Varist að láta nokkurn leiða yður í villu.
136Margir munu koma í mínu nafni og segja: ,Það er ég!` og marga munu þeir leiða í villu.
137En þegar þér spyrjið hernað og ófriðartíðindi, þá skelfist ekki. Þetta á að verða, en endirinn er ekki þar með kominn.
138Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða landskjálftar á ýmsum stöðum og hungur. Þetta er upphaf fæðingarhríðanna.
139Gætið að sjálfum yður. Menn munu draga yður fyrir dómstóla, í samkundum verðið þér húðstrýktir, og þér munuð leiddir fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna, þeim til vitnisburðar.
1310En fyrst á að prédika öllum þjóðum fagnaðarerindið.
1311Þegar menn taka yður og draga fyrir rétt, hafið þá ekki fyrirfram áhyggjur af því, hvað þér eigið að segja, heldur talið það, sem yður verður gefið á þeirri stundu. Þér eruð ekki þeir sem tala, heldur heilagur andi.
1312Þá mun bróðir selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða.
1313Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns. En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða.
1314En þegar þér sjáið viðurstyggð eyðingarinnar standa þar, er ekki skyldi _ lesandinn athugi það _ þá flýi þeir, sem í Júdeu eru, til fjalla.
1315Sá sem er uppi á þaki, fari ekki ofan og inn í húsið að sækja neitt.
1316Og sá sem er á akri, skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína.
1317Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum.
1318Biðjið, að það verði ekki um vetur.
1319Á þeim dögum verður sú þrenging, sem engin hefur þvílík verið frá upphafi sköpunar, er Guð skapaði, allt til þessa, og mun aldrei verða.
1320Ef Drottinn hefði ekki stytt þessa daga, kæmist enginn maður af. En hann hefur stytt þá vegna þeirra, sem hann hefur útvalið.
1321Og ef einhver segir þá við yður: ,Hér er Kristur,` eða: ,Þar,` þá trúið því ekki.
1322Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra tákn og undur til að leiða afvega hina útvöldu ef orðið gæti.
1323Verið varir um yður. Ég hef sagt yður allt fyrir.
1324En á þeim dögum, eftir þrenging þessa, mun sólin sortna og tunglið hætta að skína.
1325Stjörnurnar munu hrapa af himni og kraftar himnanna bifast.
1326Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýjum með miklum mætti og dýrð.
1327Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta.
1328Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér, að sumar er í nánd.
1329Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að hann er í nánd, fyrir dyrum.
1330Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt þetta er komið fram.
1331Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða.
1332En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema faðirinn.
1333Verið varir um yður, vakið! Þér vitið ekki, nær tíminn er kominn.
1334Svo er þetta sem maður fari úr landi, skilji við hús sitt og feli þjónum sínum umráðin, hverjum sitt verk. Dyraverðinum býður hann að vaka.
1335Vakið því, þér vitið ekki, nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun.
1336Látið hann ekki finna yður sofandi, þegar hann kemur allt í einu.
1337Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!``
141Nú voru tveir dagar til páska og hátíðar ósýrðu brauðanna. Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu handsamað Jesú með svikum og tekið hann af lífi.
142En þeir sögðu: ,,Ekki á hátíðinni, þá gæti orðið uppþot með lýðnum.``
143Hann var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum.
144En þar voru nokkrir, er gramdist þetta, og þeir sögðu sín á milli: ,,Til hvers er þessi sóun á smyrslum?
145Þessi smyrsl hefði mátt selja fyrir meira en þrjú hundruð denara og gefa fátækum.`` Og þeir atyrtu hana.
146En Jesús sagði: ,,Látið hana í friði! Hvað eruð þér að angra hana? Gott verk gjörði hún mér.
147Fátæka hafið þér jafnan hjá yður og getið gjört þeim gott, nær þér viljið, en mig hafið þér ekki ávallt.
148Hún gjörði það, sem í hennar valdi stóð. Hún hefur fyrirfram smurt líkama minn til greftrunar.
149Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindið verður flutt, um heim allan, mun og getið verða þess, sem hún gjörði, til minningar um hana.``
1410Júdas Ískaríot, einn þeirra tólf, fór þá til æðstu prestanna að framselja þeim hann.
1411Þegar þeir heyrðu það, urðu þeir glaðir við og hétu honum fé fyrir. En hann leitaði færis að framselja hann.
1412Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna, þegar menn slátruðu páskalambinu, sögðu lærisveinar hans við hann: ,,Hvert vilt þú, að vér förum og búum þér páskamáltíðina?``
1413Þá sendi hann tvo lærisveina sína og sagði við þá: ,,Farið inn í borgina, og ykkur mun mæta maður, sem ber vatnsker. Fylgið honum,
1414og þar sem hann fer inn, skuluð þið segja við húsráðandann: ,Meistarinn spyr: Hvar er herbergið, þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum?`
1415Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum og til reiðu. Hafið þar viðbúnað fyrir oss.``
1416Lærisveinarnir fóru, komu inn í borgina og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.
1417Um kvöldið kom hann með þeim tólf.
1418Þegar þeir sátu að borði og mötuðust sagði Jesús: ,,Sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig, einn sem með mér etur.``
1419Þeir urðu hryggir við og sögðu við hann, einn af öðrum: ,,Ekki er það ég?``
1420Hann svaraði þeim: ,,Það er einn þeirra tólf. Hann dýfir í sama fat og ég.
1421Mannssonurinn fer að sönnu héðan, svo sem um hann er ritað, en vei þeim manni, sem því veldur, að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.``
1422Þá er þeir mötuðust, tók hann brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf þeim og sagði: ,,Takið, þetta er líkami minn.``
1423Og hann tók kaleik, gjörði þakkir og gaf þeim, og þeir drukku af honum allir.
1424Og hann sagði við þá: ,,Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga.
1425Sannlega segi ég yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins til þess dags, er ég drekk hann nýjan í Guðs ríki.``
1426Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins.
1427Og Jesús sagði við þá: ,,Þér munuð allir hneykslast, því að ritað er: Ég mun slá hirðinn, og sauðirnir munu tvístrast.
1428En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu.``
1429Þá sagði Pétur: ,,Þótt allir hneykslist, geri ég það aldrei.``
1430Jesús sagði við hann: ,,Sannlega segi ég þér: Nú í nótt, áður en hani galar tvisvar, muntu þrisvar afneita mér.``
1431En Pétur kvað enn fastar að: ,,Þó að ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér.`` Eins töluðu þeir allir.
1432Þeir koma til staðar, er heitir Getsemane, og Jesús segir við lærisveina sína: ,,Setjist hér, meðan ég biðst fyrir.``
1433Hann tók með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes. Og nú setti að honum ógn og angist.
1434Hann segir við þá: ,,Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið.``
1435Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll til jarðar og bað, að sú stund færi fram hjá sér, ef verða mætti.
1436Hann sagði: ,,Abba, faðir! allt megnar þú. Tak þennan kaleik frá mér! Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt.``
1437Hann kemur aftur og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: ,,Símon, sefur þú? Gastu ekki vakað eina stund?
1438Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.``
1439Aftur vék hann brott og baðst fyrir með sömu orðum.
1440Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra. Og ekki vissu þeir, hvað þeir ættu að segja við hann.
1441Í þriðja sinn kom hann og sagði við þá: ,,Sofið þér enn og hvílist? Nú er nóg. Stundin er komin. Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna.
1442Standið upp, förum! Sá er í nánd, er mig svíkur.``
1443Um leið, meðan hann var enn að tala, kemur Júdas, einn þeirra tólf, og með honum flokkur manna frá æðstu prestunum, fræðimönnunum og öldungunum, og höfðu þeir sverð og barefli.
1444Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: ,,Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum og færið brott í tryggri vörslu.``
1445Hann kemur, gengur beint að Jesú og segir: ,,Rabbí!`` og kyssti hann.
1446En hinir lögðu hendur á hann og tóku hann.
1447Einn þeirra, er hjá stóðu, brá sverði, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.
1448Þá sagði Jesús við þá: ,,Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig?
1449Daglega var ég hjá yður í helgidóminum og kenndi, og þér tókuð mig ekki höndum. En ritningarnar hljóta að rætast.``
1450Þá yfirgáfu hann allir lærisveinar hans og flýðu.
1451En maður nokkur ungur fylgdist með honum. Hann hafði línklæði eitt á berum sér. Þeir vildu taka hann,
1452en hann lét eftir línklæðið og flýði nakinn.
1453Nú færðu þeir Jesú til æðsta prestsins. Þar komu saman allir æðstu prestarnir, öldungarnir og fræðimennirnir.
1454Pétur fylgdi honum álengdar, allt inn í garð æðsta prestsins. Þar sat hann hjá þjónunum og vermdi sig við eldinn.
1455Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu vitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann, en fundu eigi.
1456Margir báru þó ljúgvitni gegn honum, en framburði þeirra bar ekki saman.
1457Þá stóðu nokkrir upp og báru ljúgvitni gegn honum og sögðu:
1458,,Vér heyrðum hann segja: ,Ég mun brjóta niður musteri þetta, sem með höndum er gjört, og reisa annað á þrem dögum, sem ekki er með höndum gjört.` ``
1459En ekki bar þeim heldur saman um þetta.
1460Þá stóð æðsti presturinn upp og spurði Jesú: ,,Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?``
1461En hann þagði og svaraði engu. Enn spurði æðsti presturinn hann: ,,Ertu Kristur, sonur hins blessaða?``
1462Jesús sagði: ,,Ég er sá, og þér munuð sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma í skýjum himins.``
1463Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: ,,Hvað þurfum vér nú framar votta við?
1464Þér heyrðuð guðlastið. Hvað líst yður?`` Og þeir dæmdu hann allir sekan og dauða verðan.
1465Þá tóku sumir að hrækja á hann, þeir huldu andlit hans, slógu hann með hnefunum og sögðu við hann: ,,Spáðu!`` Eins börðu þjónarnir hann.
1466Pétur var niðri í garðinum. Þar kom ein af þernum æðsta prestsins
1467og sá, hvar Pétur var að orna sér. Hún horfir á hann og segir: ,,Þú varst líka með manninum frá Nasaret, þessum Jesú.``
1468Því neitaði hann og sagði: ,,Ekki veit ég né skil, hvað þú ert að fara.`` Og hann gekk út í forgarðinn, [en þá gól hani.]
1469Þar sá þernan hann og fór enn að segja við þá, sem hjá stóðu: ,,Þessi er einn af þeim.``
1470En hann neitaði sem áður. Litlu síðar sögðu þeir, er hjá stóðu enn við Pétur: ,,Víst ertu einn af þeim, enda ertu Galíleumaður.``
1471En hann sór og sárt við lagði: ,,Ég þekki ekki þennan mann, sem þér talið um.``
1472Um leið gól hani annað sinn, og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt við hann: ,,Áður en hani galar tvisvar muntu þrisvar afneita mér.`` Þá fór hann að gráta.
151Þegar að morgni gjörðu æðstu prestarnir samþykkt með öldungunum, fræðimönnunum og öllu ráðinu. Þeir létu binda Jesú og færa brott og framseldu hann Pílatusi.
152Pílatus spurði hann: ,,Ert þú konungur Gyðinga?`` Hann svaraði: ,,Þú segir það.``
153En æðstu prestarnir báru á hann margar sakir.
154Pílatus spurði hann aftur: ,,Svarar þú engu? Þú heyrir, hve þungar sakir þeir bera á þig.``
155En Jesús svaraði engu framar, og undraðist Pílatus það.
156En á hátíðinni var hann vanur að gefa þeim lausan einn bandingja, þann er þeir báðu um.
157Maður að nafni Barabbas var þá í böndum ásamt upphlaupsmönnum. Höfðu þeir framið manndráp í upphlaupinu.
158Nú kom mannfjöldinn og tók að biðja, að Pílatus veitti þeim hið sama og hann væri vanur.
159Pílatus svaraði þeim: ,,Viljið þér, að ég gefi yður lausan konung Gyðinga?``
1510Hann vissi, að æðstu prestarnir höfðu fyrir öfundar sakir framselt hann.
1511En æðstu prestarnir æstu múginn til að heimta, að hann gæfi þeim heldur Barabbas lausan.
1512Pílatus tók enn til máls og sagði við þá: ,,Hvað á ég þá að gjöra við þann, sem þér kallið konung Gyðinga?``
1513En þeir æptu á móti: ,,Krossfestu hann!``
1514Pílatus spurði: ,,Hvað illt hefur hann þá gjört?`` En þeir æptu því meir: ,,Krossfestu hann!``
1515En með því að Pílatus vildi gjöra fólkinu til hæfis, gaf hann þeim Barabbas lausan. Hann lét húðstrýkja Jesú og framseldi hann til krossfestingar.
1516Hermennirnir fóru með hann inn í höllina, aðsetur landshöfðingjans, og kölluðu saman alla hersveitina.
1517Þeir færa hann í purpuraskikkju, flétta þyrnikórónu og setja á höfuð honum.
1518Þá tóku þeir að heilsa honum: ,,Heill þú, konungur Gyðinga!``
1519Og þeir slógu höfuð hans með reyrsprota og hræktu á hann, féllu á kné og hylltu hann.
1520Þegar þeir höfðu spottað hann, færðu þeir hann úr purpuraskikkjunni og í hans eigin klæði. Þá leiddu þeir hann út til að krossfesta hann.
1521En maður nokkur átti leið þar hjá og var að koma utan úr sveit. Hann neyða þeir til að bera kross Jesú. Það var Símon frá Kýrene, faðir þeirra Alexanders og Rúfusar.
1522Þeir fara með hann til þess staðar, er heitir Golgata, það þýðir ,,hauskúpustaður.``
1523Þeir báru honum vín, blandað myrru, en hann þáði ekki.
1524Þá krossfestu þeir hann. Og þeir skiptu með sér klæðum hans og köstuðu hlutum um, hvað hver skyldi fá.
1525En það var um dagmál, er þeir krossfestu hann.
1526Og yfirskriftin um sakargift hans var svo skráð: KONUNGUR GYÐINGA.
1527Með honum krossfestu þeir tvo ræningja, annan til hægri handar honum, en hinn til vinstri. [
1528Þá rættist sú ritning, er segir: Með illvirkjum var hann talinn.]
1529Þeir, sem fram hjá gengu, hæddu hann, skóku höfuð sín og sögðu: ,,Svei, þú, sem brýtur niður musterið og reisir það á þrem dögum!
1530Bjarga nú sjálfum þér, og stíg niður af krossinum.``
1531Eins gjörðu æðstu prestarnir gys að honum og fræðimennirnir og sögðu hver við annan: ,,Öðrum bjargaði hann, sjálfum sér getur hann ekki bjargað.
1532Stígi nú Kristur, konungur Ísraels, niður af krossinum, svo að vér getum séð og trúað.`` Einnig smánuðu hann þeir, sem með honum voru krossfestir.
1533Á hádegi varð myrkur um allt land til nóns.
1534Og á nóni kallaði Jesús hárri röddu: ,,Elóí, Elóí, lama sabaktaní!`` Það þýðir: Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?
1535Nokkrir þeirra, er hjá stóðu, heyrðu þetta og sögðu: ,,Heyrið, hann kallar á Elía!``
1536Hljóp þá einn til, fyllti njarðarvött ediki, stakk á reyrstaf og gaf honum að drekka. Hann mælti: ,,Látum sjá, hvort Elía kemur að taka hann ofan.``
1537En Jesús kallaði hárri röddu og gaf upp andann.
1538Og fortjald musterisins rifnaði í tvennt, ofan frá allt niður úr.
1539Þegar hundraðshöfðinginn, sem stóð gegnt honum, sá hann gefa upp andann á þennan hátt, sagði hann: ,,Sannarlega var þessi maður sonur Guðs.``
1540Þar voru og konur álengdar og horfðu á, meðal þeirra María Magdalena, María, móðir þeirra Jakobs yngra og Jóse, og Salóme.
1541Þær höfðu fylgt honum og þjónað, er hann var í Galíleu. Þar voru margar aðrar konur, sem höfðu farið með honum upp til Jerúsalem.
1542Nú var komið kvöld. Þá var aðfangadagur, það er dagurinn fyrir hvíldardag.
1543Þá kom Jósef frá Arímaþeu, göfugur ráðsherra, er sjálfur vænti Guðs ríkis. Hann dirfðist að fara inn til Pílatusar og biðja um líkama Jesú.
1544Pílatus furðaði á, að hann skyldi þegar vera andaður. Hann kallaði til sín hundraðshöfðingjann og spurði, hvort hann væri þegar látinn.
1545Og er hann varð þess vís hjá hundraðshöfðingjanum, gaf hann Jósef líkið.
1546En hann keypti línklæði, tók hann ofan, sveipaði hann línklæðinu og lagði í gröf, höggna í klett, og velti steini fyrir grafarmunnann.
1547María Magdalena og María móðir Jóse sáu, hvar hann var lagður.
161Þá er hvíldardagurinn var liðinn, keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann.
162Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni.
163Þær sögðu sín á milli: ,,Hver mun velta fyrir oss steininum frá grafarmunnanum?``
164En þegar þær líta upp, sjá þær, að steininum hafði verið velt frá, en hann var mjög stór.
165Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju og þær skelfdust.
166En hann sagði við þær: ,,Skelfist eigi. Þér leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki hér. Sjá, þarna er staðurinn, þar sem þeir lögðu hann.
167En farið og segið lærisveinum hans og Pétri: ,Hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann, eins og hann sagði yður`.``
168Þær fóru út og flýðu frá gröfinni, því ótti og ofboð var yfir þær komið. Þær sögðu engum frá neinu, því þær voru hræddar.
169Þegar hann var upp risinn árla hinn fyrsta dag vikunnar, birtist hann fyrst Maríu Magdalenu, en út af henni hafði hann rekið sjö illa anda.
1610Hún fór og kunngjörði þetta þeim, er með honum höfðu verið og hörmuðu nú og grétu.
1611Þá er þeir heyrðu, að hann væri lifandi og hún hefði séð hann, trúðu þeir ekki.
1612Eftir þetta birtist hann í annarri mynd tveimur þeirra, þar sem þeir voru á göngu á leið út í sveit.
1613Þeir sneru við og kunngjörðu hinum, en þeir trúðu þeim ekki heldur.
1614Seinna birtist hann þeim ellefu, þegar þeir sátu til borðs, og ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og harðúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim, er sáu hann upp risinn.
1615Hann sagði við þá: ,,Farið út um allan heim, og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni.
1616Sá sem trúir og skírist, mun hólpinn verða, en sá sem trúir ekki, mun fyrirdæmdur verða.
1617En þessi tákn munu fylgja þeim, er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum,
1618taka upp höggorma, og þó að þeir drekki eitthvað banvænt, mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja hendur, og þeir verða heilir.``
1619Þegar nú Drottinn Jesús hafði talað við þá, var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði.