Share this page:  
 

Multilingual Scriptures

(Compare books in 2 different language versions of your choice)

Comparison Search:

Select Language version and font:
You can only select max. of two versions.
Book:
Chapter:
Verse:
---------
From: To:

Free Search:

Select Language version and font:
Enter search text:

Multilingual Scriptures Home » Icelandic Bible » Obadiah

Icelandic Bible
Chapter # Verse # Verse Detail
11Vitrun Óbadía. Svo segir Drottinn Guð um Edóm: Vér höfum fengið vitneskju frá Drottni, og boðberi er sendur meðal þjóðanna: ,,Af stað! Vér skulum halda af stað til þess að herja á hann!``
12Sjá, ég vil gjöra þig lítinn meðal þjóðanna, þú munt verða mjög fyrirlitinn.
13Hroki hjarta þíns hefir dregið þig á tálar, þú sem átt byggð í klettaskorum og situr í hæðum uppi, sem segir í hjarta þínu: ,,Hver getur steypt mér niður til jarðar?``
14Þótt þú sætir hátt eins og örninn og byggðir hreiður þitt meðal stjarnanna, þá steypi ég þér þaðan niður, _ segir Drottinn.
15Ef þjófar koma að þér eða ræningjar á náttarþeli _ hversu ert þú í eyði lagður _, stela þeir þá ekki, þar til er þeim nægir? Ef vínlestursmenn ráðast á þig, skilja þeir þá ekki eftir neinn eftirtíning?
16En hversu vandlega hefir verið leitað hjá Esaú og leitaðir uppi fólgnir dýrgripir hans.
17Allir sambandsmenn þínir reka þig út á landamærin. Þeir sem lifðu í friði við þig, draga þig á tálar, bera þig ofurliði. Þeir sem átu brauð þitt, leggja fyrir þig snörur, sem eigi er unnt að sjá.
18Já, á þeim degi _ segir Drottinn _ mun ég afmá vitra menn í Edóm og hyggindin á Esaúfjöllum.
19Kappar þínir, Teman, skulu skelfast, til þess að hver maður verði upprættur af Esaúfjöllum í manndrápunum.
110Sökum ofríkis þess, er þú hefir sýnt bróður þínum Jakob, skal smán hylja þig, og þú skalt að eilífu upprættur verða.
111Þann dag, er þú stóðst andspænis honum, þann dag, er aðkomnir menn fluttu burt fjárafla hans hertekinn og útlendingar brutust inn um borgarhlið hans og urpu hlutkesti um Jerúsalem, varst þú sem einn af þeim.
112Horf eigi með ánægju á dag bróður þíns, á ógæfudag hans, og gleð þig eigi yfir Júda sonum á eyðingardegi þeirra og lát þér eigi stóryrði um munn fara á neyðardegi þeirra.
113Ryðst ekki inn um hlið þjóðar minnar á glötunardegi þeirra, horf þú ekki líka með ánægju á óhamingju hennar á glötunardegi hennar og rétt þú ekki út höndina eftir fjárafla hennar á glötunardegi hennar.
114Nem eigi staðar á vegamótum til þess að drepa niður flóttamenn hennar, og framsel eigi menn hennar, þá er undan komast, á degi neyðarinnar.
115Því að dagur Drottins er nálægur fyrir allar þjóðir. Eins og þú hefir öðrum gjört, eins skal þér gjört verða; gjörðir þínar skulu þér í koll koma.
116Því að eins og þér hafið drukkið á mínu heilaga fjalli, svo skulu allar þjóðirnar drekka stöðuglega. Þær skulu drekka og sötra og verða eins og þær aldrei hefðu til verið.
117En á Síonfjalli skal frelsun verða, og það skal heilagt vera, og Jakobs niðjar skulu fá aftur eignir sínar.
118Og Jakobs hús mun verða að eldi og Jósefs hús að loga og Esaú hús að hálmi, og þeir munu kveikja í og eyða honum, svo að ekkert skal eftir verða af Esaúniðjum, því að Drottinn hefir talað það.
119Sunnlendingar skulu taka Esaúfjöll til eignar og Sléttumenn Filisteu. Þeir munu og taka Efraímsland og Samaríuland til eignar, og Benjamín Gíleað.
120Þeir af Ísraelsmönnum, er teknir hafa verið í vígi þessu og fluttir burt hernumdir, munu taka það til eignar, sem Kanaanítar eiga, allt til Sarefta, og þeir sem fluttir hafa verið burt hernumdir frá Jerúsalem, þeir sem eru í Sefarad, munu taka til eignar borgir Suðurlandsins.